Meirihlutinn í Rangárþingi ytra fallinn

Frá Hellu.
Frá Hellu. www.mats.is

Meirihluti Á-listans í Rangárþingi ytra er fallinn. Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir ætlar að mynda meirihluta með D-listanum. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Sunnlenska.is.

Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti Á-listans, staðfesti þetta í samtali við sunnlenska.is í morgun. Að sögn Guðfinnu sendi Margrét fyrrverandi félögum sínum í Á-listanum skilaboð um þetta með SMS og tölvupóstum í gærkvöldi.

Eins og fram kom  í frétt á vef mbl.is í vikunni höfðu þreifingar verið í gangi Margrétar og D-listans.

Sjö fulltrúar sitja í hreppsnefnd Rangárþings ytra og í síðustu sveitarstjórnarkosningum vann Á-listinn tímamótasigur og fékk fjóra fulltrúa en D-listinn þrjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert