Snjóflóðahætta á Austfjörðum

Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum.
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum.

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum.

Fram kemur á vef Veðurstofunnar að töluvert nýsnævi hafi bæst ofan á gamla snjóinn sem var fyrir um helgina og hafa flóð fallið til fjalla af þeim sökum. Krapi er í byggð en snjór er hins vegar þurr ofan við 300 metra segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að spáð sé áframhaldandi úrkomu næsta sólarhring en á miðvikudag ætti hins vegar að létta til. Áframhaldandi óstöðugleiki geti þó verið í nýja snjónum eftir að úrkoma hættir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert