Bogfimi, bátar og bananar

Frá Úlfljótsvatni.
Frá Úlfljótsvatni.

Það verður mikið fjör um verslunarmannahelgina á Úlfljótsvatni og þar verður fjölskyldan í fyrirrúmi. Guðmundur Finnbogason hjá Útilífsmiðstöð skáta segir að allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Bogfimi, bátar, klifurturn, vatnasafarí, hoppukastalar, folf, varðeldar og skátasmiðjur er meðal þess sem er í boði. Hægt er að kaupa sérstök dagskrárarmbönd sem gilda alla helgina. Þau kosta 2.000 kr. en einnig er hægt að kaupa í einstaka dagskrárliði, segir í frétt á vefnum Skatamal.is.

Bananahús fyrir yngstu krakkana

Þá verður sérstakur bananaleikur í gangi fyrir yngstu krakkana á tjaldsvæðinu alla helgina en þar eru krakkarnir hvattir til að leysa hin ýmsu verkefni eins og t.d. að teikna mynd af Úlfljótsvatni, búa til blómvönd, spreyta sig í þrautabraut eða hjálpa til við kvöldmatinn. Þegar þau hafi lokið 12 af 16 mögulegum verkefnum fá þau gefins litla gjöf og banana í sérstöku bananahúsi. Bananaleikurinn er innifalinn í tjaldsvæðisgjaldi.

„Við viljum taka það sérstaklega fram að Úlfljótsvatn er fjölskyldutjaldsvæði hugsað fyrir fjölskyldufólk og hér er kyrrð á svæðinu frá miðnætti,“  er haft eftir Guðmundi í fréttatilkynningu. Hann áréttar að ölvun sé ekki leyfileg á svæðinu þó að mönnum sé velkomið að fá sér vínglas með matnum.

Á liðnum árum hefur aðstaðan á Úlfljótsvatni byggst upp, bæði afþreying sem og hreinlætisaðstaða. Tjaldsvæðið er öllum opið og allir velkomnir. Ókeypis er fyrir 16 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.

Fjölbreytt dagskrá alla helgina

Fimmtudagur
16-21 Frítt kaffi í þjónustuhúsinu á meðan fólk er að koma sér fyrir

Föstudagur
16-17 Myndapóstaleikur um svæðið
16-23:30 Frítt kaffi í þjónustuhúsinu á meðan fólk er að koma sér fyrir

Laugardagur
10-12 Hoppukastalar
11-12 Myndapóstaleikur
11-12 Bogfimi
13-15 Bátaleiga
14-15 Folf kennsla
15-16 Barnavarðeldur
16-18 Skátasmiðja (efniskostnaður ekki innifalinn í dagskrárgjaldi)
16-17 Poppað á opnum eldi
17-18 Þrautabraut
17-18 Turn
14-17 Vöfflusala í Gilwell skálanum
21-22 Varðeldur að skátasið

Sunnudagur
10-12 Hoppukastalar
10-12 Hnútakennsla
13-15 Bátaleiga
14-17 Vöfflusala í Gilwell skálanum
14-16 Skátasmiðja (efniskostnaður ekki innifalinn í dagskrárgjaldi)
15-16 Vatnasafarí
16-18 Turn
21-22 Varðeldur að skátasið

Mánudagur
10-12 Hoppukastalar
10-12 Bogfimi
13-15 Bátaleiga

Ókeypis gisting fyrir börn

Verði fyrir gistingu á tjaldsvæði er stillt í hóf og gista börn 16 ára og yngri ókeypis. Auk þess er ókeypis fyrir þau í barnaleikinn yfir verslunarmannahelgina.  Fullorðnir greiða 1.200 kr. fyrir gistingu fyrstu nóttina á tjaldsvæðinu, önnur nótt kostar 1.000 kr. og allar nætur eftir það 900 kr., ef allt er greitt í einu við komu á svæðið.  Mögulegt er að fá tengingu við rafmagn og kostar það 1.000 kr. hver nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert