Innkalla Fireball kanilviskí

Fireball kanilviskí.
Fireball kanilviskí. Ljósmynd/Haugen-Gruppen

Haugen-Gruppen ehf. hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla frá neytendum Fireball kanilviskí.

Framleiðandi Fireball, Sazerac Company í Bandaríkjunum, sendi fyrir mistök Fireball sem ætlaður var innlendum markaði en ekki evrópskum. Fireball fyrir Bandaríkjamarkað inniheldur 5,8 grömm af propylene glycol í hverjum líter en evrópskar reglur heimila 1 gramm per líter.

„Þótt öll eðlileg notkun vörunnar sé fullkomlega hættulaus hefur verið ákveðið að innkalla vöruna af markaði þar sem hún uppfyllir ekki EU reglur sem innleiddar hafa verið á Íslandi,“ segir í tilkynningu.

Haugen-Gruppen ehf. hvetur viðskiptavini sem hafa umrædda vörutegund undir höndum að skila vörunni til næstu Vínbúðar þar sem viðskiptavinir geta fengið vöruna endurgreidda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert