112 endurmetur viðbúnað

Truflanir sem urðu í símkerfi Neyðarlínunnar á laugardagsmorgun þegar ofsaveður gekk yfir landið eru tilefni til þess að endurmeta viðbúnað, afkastagetu fjarskiptatenginga, mögulega forgangsröðun erinda eftir eðli og sérstaka viðbragðsáætlun ef sambærilegar aðstæður skapast aftur.

Í tilkynningu frá Neyðarlínunni kemur fram að við yfirferð gagna hafi ekkert komið fram sem bendi til þess að bilun hafi orðið í búnaði 112-þjónustunnar. Neyðarlínan hafi sl. sólarhring farið yfir gögn úr síma- og tölvukerfum sínum og jafnframt átt fundi með fjarskiptafélögum til að greina ástæður þess að á tímabilinu frá kl. 8.45 til 9.58 sl. laugardag hafi verið mörg dæmi þess að símsvari segði „þetta númer er ekki til“. Þetta hafi verið röng skilboð úr kerfum símafélagana en allar tengingar hafi verið yfirfullar vegna álags. Félögin vinni nú í sameiningu að því að greina orsakir þessa og að tryggja að þetta ástand endurtaki sig ekki.  

Í óveðrinu varð álag á neyðarsímþjónustuna 112 meira en áður hefur gerst. 1400 símtöl voru afgreidd frá 08:00 til 12:00 s.l. laugardag. Þegar mest gekk á reyndu yfir 500 aðilar að hringja á sama tíma. Skýringin er að hluta til hin röngu skilaboð sem kölluðu á endurteknar hringingar. 

„Niðurstöður yfirferðarinnar gefa hins vegar tilefni til að endurmeta viðbúnað 112; afkastagetu tenginga við símafélögin, mögulega forgangsröðun eftir eðli erinda og sérstaka viðbragðsáætlun ef aðstæður sem þessar skapast aftur. Á sama tíma þurfa viðbragðsaðilar að taka þátt í að skerpa verklag við greiningu og úrvinnslu erinda. Þá verður viðbragðskeðjan álagsprófuð oftar en hingað til í samstarfi símafyrirtækja, Neyðarlínu og viðbragðsaðila. Þessi reynsla er dýrmæt og verður nýtt til að efla viðbragðskerfið öllum til hagsbóta,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert