Tilbeiðsluhús á Nónhæð

Teikning af tilbeiðsluhúsinu horft frá gatnamótum Nónsmára og Arnarsmára. Gera …
Teikning af tilbeiðsluhúsinu horft frá gatnamótum Nónsmára og Arnarsmára. Gera má ráð fyrir að hæð og umfang verði í samræmi við bygginguna á myndinni.

Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar hafa borist svokallaðar fyrirspurnarteikningar vegna byggingar 1.265 fermetra tilbeiðsluhúss á Nónhæð í Kópavogi.

Í útdrætti með teikningunum að tilbeiðsluhúsinu kemur fram að byggingin sé á þremur hæðum sem allar gegni mismunandi hlutverki.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Aðalsteinn Snorrason, arkitektinn sem útbjó fyrirspurnarteikningarnar, hönnun húsnæðisins vera heppilega fyrir mörg trúfélög. Hönnunin hafi fyrst og fremst snúist um að gera samningsstöðu fyrir landeigandann betri.Lóðin Nónhæð er í eigu fyrirtækis Kristjáns Snorrasonar og eiginkonu hans. Kristján hefur lengi viljað reisa íbúðarhúsnæði á lóðinni en segir skipulagsnefnd Kópavogsbæjar ekki hafa fengist til að samþykkja tillögur sínar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert