Frá hættustigi á óvissustig

Flogið yfir Vatnajökul.
Flogið yfir Vatnajökul. Ljósmynd/Friðrik

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hefur fært viðbúnaðarstig almannavarna vegna jarðhræringa í Bárðarbungu af hættustigi niður á óvissustig. Óvissustig almannavarna þýðir að eftirlit er haft með atburðarrás sem gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.

Ákvörðunin er tekin í samræmi við hættumat Veðurstofu Íslands og mælingar sem sýna að dregið hefur töluvert úr skjálftavirkni og GPS færslum, segir í frétt Ríkislögreglustjóra.

Enn er þó aukin jarðhitavirkni í Bárðarbungu sem getur leitt til söfnunar á bræðsluvatni og minni jökulhlaupum í Jökulsá á Fjöllum. Nýlegar mælingar sýna að gasmengun á svæðinu í og við Holuhraun er almennt undir hættumörkum. Lokun lögreglu á svæðinu er aflétt. Þær stofnanir sem fylgst hafa með svæðinu munu fram á haust sinna sérstöku eftirliti með því.

Vatnajökulsþjóðgarður hefur umsjón með svæðinu og stefnir að því að veita aðgang að hrauninu eftir merktum gönguleiðum. Að öðru leyti verður umferð um hraunið óheimil, vegna náttúruverndar- og öryggissjónarmiða, en hraunið er víðast illfært.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert