Tala þarf Samfylkinguna upp

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

„Ég er ekkert undrandi á því,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í þættinum Eyjan á Stöð 2 í kvöld þegar stjórnandi þáttarins, Björn Ingi Hrafnsson, spurði hann hvort hann væri hissa á því að vera spurður að því hvers vegna hann hætti ekki sem formaður flokksins vegna slaks gengis hans í skoðanakönnunum. Slíkt sagði Árni ekki á dagskrá.

Árni Páll spurði Björn Inga á móti hvort hann héldi að honum þætti gaman að mæta til að mynda í sjónvarpsþætti og svara spurningum um fylgi Samfylkingarinnar í stað þess að ræða um stjórnmál. Sagði hann vini sína spyrja hann að því hvernig hann nennti þessu. „Ég er ekki sérfræðingur í skoðanakönnunum.“

Málið sagði Árni Páll snúast um það að Samfylkingin næði vopnum sínum og sýndi að gólk gæti snúið bökum saman þegar á reyndi. Flokksmenn þyrftu að tala flokkinn upp en ekki niður. Ef það tækist ekki væri Samfylkingin ekki stjórntækur stjórnmálaflokkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert