Snjó kyngdi niður á Akureyri í gær og ekki varð umflúið í bítið, áður en bæjarbúar lögðu af stað út í eril dagsins, að skafa af bílnum eða jafnvel moka stéttina. Mikið hafði nefnilega bætt í síðan fólk lagðist til hvílu í gærkvöldi. Fallegt er í bænum og veðrið eins og best verður á kosið. Logn og frostið líklega ein og hálf gráða.
Fjölförnustu götur voru mokaðar strax eldsnemma í morgun - eða seint í nótt - svo engin vandræði voru með umferð. Eftir að því verki lauk var hafist handa við að hreinsa aðrar götur og hvergi hafa verið vandræði í bænum.
Blaðamaður Morgunblaðsins og mbl.is fór um bæinn í morgun með myndavélina á lofti.