Vaka félag lýðræðissinnaðra stúdenta hefur kynnt framboðslista sína fyrir kosningarnar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands sem fara fram þann 3. og 4. febrúar næstkomandi.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Vaka vilji tryggja betri kennsluhætti í skólanum, bæta aðgengi að námsefni og að fram fari heildarendurskoðun á LÍN. „Allar byggingar háskólasvæðisins eiga að vera aðgengilegar, t.d. þarf varanlegan ramp á Stúdentakjallarann, það þarf að bæta tengsl Háskólans við atvinnulífið og telur Vaka að flytja eigi sjúkrapróf til janúarmánaðar,“ segir ennfremur.
Framboðslistarnir eru eftirfarandi:
Félagsvísindasvið:
1. Birkir Grétarsson - Stjórnmálafræði
2. Sigmar Aron Ómarsson - Lögfræði
3. Guðbjörg Lára Másdóttir - Stjórnmálafræði
4. Ingileif Friðriksdóttir - Lögfræði
5. Vilborg Ásta Árnadóttir - Viðskiptafræði
6. Eva Björk Jóhannsdóttir - Hagfræði
7. Torfey Rós Jónsdóttir - Félagsráðgjöf
Heilbrigðisvísindasvið:
1. Sunneva Björk Gunnarsdóttir - Hjúkrunarfræði
2. Sigríður Sissa Helgadóttir - Sálfræði
3. Lilja Dögg Gísladóttir - Læknisfræði
4. Jón Viðar Pálsson - Sálfræði
5. Selma Jónsdóttir - Lyfjafræði
Hugvísindasvið:
1. Steinar Sigurjónsson - Heimspeki
2. Kristjana Ingvadóttir - Sagnfræði
3. Rizza Fay Elíasdóttir - Enska
4. Tómas Ingi Shelton - Sagnfræði
5. Lucia Escamilla Gonzalez - Enska
Menntavísindasvið:
1. Jónína Sigurðardóttir- Uppeldis- og menntunarfræði
2. María Björk Einarsdóttir - Grunnskólakennarafræði
3. Lilja Sif Bjarnadóttir - Grunnskólakennarafræði
4. Jón Vilberg Jónsson - Uppeldis- og menntunarfræði
5. Rakel Guðmundsdóttir - Tómstunda- og félagsmálafræði
Verkfræði- og náttúruvísindasvið:
1. Anna Rut Arnardóttir - Vélaverkfræði
2. Íris Hauksdóttir - Líffræði
3. Ragnheiður Björnsdóttir - Umhverfis- og byggingarverkfræði
4. Hörður S. Óskarsson - Jarðfræði
5. Marta Sól Alexdóttir - Lífefna og sameindalíffræði