Efla leit að rjúpnaskyttum í birtingu

mbl.is/Eggert

Um fjörutíu björgunarsveitarmenn hafa leitað að tveimur rjúpnaskyttum á sunnanverðu Snæfellsnesi í nótt. Leitin hefur ekki borið árangur. Þyrla Landhelgisgæsla aðstoðaði við leitina frá miðnætti til klukkan þrjú í nótt. Leitaraðstæður eru erfiðar, en á svæðinu er rok og rigning.

Einar Þór Strand, sem er í aðgerðastjórn Landsbjargar á Snæfellsnesi, segir í samtali við mbl.is að von sé á auka mannskap til að taka þátt í leitinni. Búist er við að um það bil 100 manns muni taka þátt í leitinni í dag og auk þess sem þyrla Gæslunnar flýgur aftur yfir svæðið.

Frétt mbl.is: Leitað að rjúpnaskyttum á Snæfellsnesi

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi og Vesturlandi voru kallaðar út um klukkan 22.30 í gærkvöldi til leitar að skyttunum sem héldu til veiða frá Slitvindastöðum í Staðarsveit í gærmorgun.

Aðstæður til leitar í gærkvöldi voru erfiðar, dimm þoka lá yfir leitarsvæðinu sem er erfitt yfirferðar. 
„Það er búið að vera leiðindaveður, rigning og rok í fjallahæð, og þoka,“ segir Einar. Björgunarsveitarmenn hafa í nótt reynt að hraðleita helstu gönguleiðir á svæðinu en án árangurs. 
Hann segir að stefnt sé að því að efla leit í birtingu, en tekur fram að veðurspáin í dag sé leiðinleg fram eftir degi. Áframhaldandi rok og rigning. 

Að sögn Einars gerðu aðstandendur mannanna viðvart um að þeir hefðu ekki skilað sér til baka. Ekki hefur náðst í mennina í gegnum síma, en talið er að símarnir séu rafmangslausir. Þyrla Gæslunnar flaug yfir svæðið í nótt en þyrlan er með sérstakan útbúnað sem getur numið farsímamerki. Sú leit skilaði hins vegar ekki árangri. 

Menn vonast nú til að leitin fari að skila árangri þegar birta tekur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka