Borhola í Surtsey féll saman og bor festist í henni. Eftir margar tilraunir til að losa borinn var gefist upp og ekki verður meira borað í holunni. Þegar hefur verið hafist handa við að bora aðra holu.
Holann átti að verða 200 metra djúp og átti að nýtast til rannsóknar um myndun móbergs og hvort bakteríur ættu hugsanlega einhvern þátt í henni. Stór hópur vísindamanna hefur dvalið í eyjunni og starfað að verkefninu.
Frétt mbl.is:Undirbúa 200 metra borholu í Surtsey
„Þessi útkoma er vissulega áfall en ef þokkalega gengur hér eftir ætti að nást að bora báðar holurnar sem að var stefnt,” segir í tilkynningu frá Jarðvísindastofnun Háskólans.
Borinn hefur verið fastur síðan á miðvikudagsmorgun, þegar holan féll saman. Þá náðist að losa hann í stutta stund en svo festist hann aftur. Að lokum gáfust vísindamennirnir upp og hættu við borun holunnar. Þá voru borstálin söguð í sundur og tekin upp.
Í tilkynningunni segir að hægt hefði verið að nota grennri borkrónu og halda áfram með holuna. Aftur á móti hefði þó ekki þjónað hagsmunum verkefnisins nægilega vel því þá hefði ekki verið hægt að setja niður álfóðringu í holunni.
Fóðringin er nauðsynleg verkefninu, en hún er forsenda þess að holan geti þjónað sem tilraunastofa fyrir mælingar í örverufræði og jarðefnafræði, næstu áratugi.
Nú hefur þegar verið hafin borun annarrar lóðréttrar holu við hlið þessarar. Vonast er til að á nokkrum dögum verði að hægt að komast niður á 170 til 180 metra dýpi en helst niður fyrir 200 metra.