Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Kosningin fer fram á landsfundi flokksins í næsta mánuði.
Hún greinir frá þessu í pistli sem hún skrifar í sunnudagsblað Morgunblaðsins í dag.