Ekki til nákvæm tölfræði um sjálfsvígstíðni

Óljóst getur verið hvað skuli teljast sjálfsvíg á stofnun. Ekki …
Óljóst getur verið hvað skuli teljast sjálfsvíg á stofnun. Ekki liggur því fyrir nákvæm tölfræði um sjálfsvíg á sjúkrahúsum á Íslandi. Mynd úr safni. mbl.is/Hari

16 sjálfsvíg og 45 alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs hafa verða verið skráðar á Landspítalanum frá því að rafræn atvikaskráning var tekin upp árið 2004. Fjórir, sem voru innritaðir á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri hafa svipt sig lífi frá árinu 1986 og á Vogi hafa tveir einstaklingar fyrirfarið sér á þeim 40 árum sem sjúkrahúsið hefur verið starfrækt.

Þetta kemur fram í svörum Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við við fyrirspurn frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um sjálfsvíg á geðdeildum og meðferðarstofnunum.

Spurði Sunna hversu margir sjúklingar hafa framið sjálfsvíg eða látist af öðrum ástæðum á geðdeildum Landspítalans, geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, Vogi og öðrum meðferðarstofnunum og hve margir sjúklingar hafi slasast alvarlega við sjálfsvígstilraun á ofangreindum stofnunum.

Skilgreiningin getur verið óljós

Í svari ráðherra segir að ekki liggi fyrir nákvæm tölfræði um sjálfsvíg á sjúkrahúsum á Íslandi þar sem ekki sé hægt að fá tölfræðina út úr dánarmeinaskrá embættis landlæknis.

Ástæða þessa sé sú að  óljóst getur verið hvað skuli teljast sjálfsvíg á stofnun. „Andlátið getur talist hafa átt sér stað á stofnun þótt verknaðurinn hafi átt sér stað annars staðar og viðkomandi verið fluttur á stofnun þar sem hann síðan andaðist. Ef sjálfsvíg verður á stofnun ber viðkomandi stofnun að skrá það hjá sér sem alvarlegt atvik og tilkynna það til embættis landlæknis,“ segir í svarinu. Það sé þó mat landlæknisembættisins að tilkynningar frá stofnunum um alvarleg atvik séu komnar í nokkuð gott lag. 

Samkvæmt þeim svörum sem heilbrigðisráðuneytið fékk hins vegar 16 sjálfsvíg og 45 alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs sjúklings í meðferðarsambandi við Landspítala verið skráð frá því að rafræn atvikaskráning var tekin upp árið 2004. Er þar átt við sjúklinga af öllum deildum spítalans, en frá 1. janúar 2007 hafa orðið átta andlát inniliggjandi sjúklinga á geðdeildum Landspítala og voru fjögur þeirra á deildum spítalans, en fjórir sjúklingar voru í dagsleyfi. Alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs á tímabilinu eru 34. Ekki var hins vegar unnt að afla upplýsinga um möguleg meiðsl sjúklinganna, en þar sem í öllum tilfellum var um inniliggjandi sjúklinga að ræða „hefur þeim að öllu jöfnu borist aðstoð hratt og örugglega,“ að því er segir í svarinu. 

Frá því að geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri var stofnuð árið 1986 hafa fjórir sjúklingar, sem innritaðir voru á geðdeild sjúkrahússins, svipt sig lífi. Einn atburðanna átti sér stað er sjúklingurinn var inniliggjandi á deild árið 2012 og þrír voru í leyfi frá sjúkrahúsinu, en þau atvik áttu sér stað á árunum 1986, 2003 og 2010. Enginn hefur hins vegar slasast alvarlega eftir sjálfsvígstilraun á geðdeild sjúkrahússins. 

Á Sjúkrahúsinu Vogi hafa tveir einstaklingar fyrirfarið sér á þeim 40 árum sem sjúkrahúsið hefur verið starfrækt. Var það árin 2014 og 2015. Auk þess hefur einn einstaklingur látist á Vogi af öðrum ástæðum. Enginn hefur slasast alvarlega við sjálfsvígstilraun. 

Engir skjólstæðingar hafa þá framið sjálfsvíg í Meðferðarheimilinu á Hlaðgerðarkoti eða slasast við sjálfsvígstilraun þar. Seint á árinu 2016 lést þó einn skjólstæðingur af öðrum orsökum á Hlaðgerðarkoti.

Þá kom fram í svörum ráðherra að búið sé að gera samning um að taka upp nýtt atvikaskráningakerfi á landinu öllu. Kerfið nefnist Datix og sé breskt og þegar notað í mörgum löndum. „Embætti landlæknis hefur leitt innleiðingu þess hér á landi og er stefnt að því að það verði komið í notkun á öllum heilbrigðisstofnunum á næsta ári. Þetta kerfi felur ekki aðeins í sér skráningu atvika heldur verður þar til miðlægur grunnur um atvik sem hægt verður að vinna tölfræði úr.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert