Nýr Landspítali þolir enga bið

Alma Möller landlæknir.
Alma Möller landlæknir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég held að það séu liðin 15 ár síðan fyrst var byrjað að ræða um hvort og hvar ætti að reisa nýjar spítalabyggingar. Landspítalinn var í alvarlegum húsnæðisvanda þá, og ástandið er orðið alveg óviðunandi í dag svo að málið þolir enga bið.“

Þetta segir Alma D. Möller, nýr landlæknir, í viðtali í Morgunblaðinu í dag, en hún telur brýnt að ljúka framkvæmdum við nýjan Landspítala sem fyrst.

Alma segir hægt að finna ótal rök bæði með og á móti staðsetningu nýrra spítalabygginga. „Í fullkomnum heimi myndum við byggja nýjan spítala frá grunni á vel völdum stað, en það er ekki í boði lengur,“ segir Alma meðal annars í viðtalinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert