Boðið var upp á fjöruga og skemmtilega leiki í veðurblíðunni á torgi Árbæjarsafns í dag, á síðasta degi Barnamenningarhátíðar.
Veður lék við gesti og var leikjunum stjórnað af vönu fólki og hentuðu börnum á öllum aldri sem og fullorðnu.
Meðal annars var brugðið á leik í fótbolta, pokahlaupi, hafnarbolta, kassabílum, á stultum og með húllahringjum, eins og sjá má á myndunum sem ljósmyndari mbl.is tók af gleðinni.