Góð veiði er í Hítárá á Mýrum, betri en á síðasta ári, þrátt fyrir breytingar á ánni í kjölfar berghlaupsins sem varð í Hítardal fyrir um mánuði. Nú stefnir í að fleiri laxar veiðist í Hítárá en á síðasta ári.
Hítará var gruggug fyrstu dagana eftir að skriðan féll úr Fagraskógarfjalli og yfir ána og meðan hún var að finna sér nýjan farveg. Fljótlega varð hún þó tær sem fyrr.
Veiðarnar héldu áfram en stangveiðimennirnir hafa einbeitt sér að neðri hluta árinnar, við Brúarfoss sem er við þjóðveginn og upp að ármótum Hítarár og Tálma. Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, segir að laxinn hangi mikið í kringum ármótin. Getur hann sér þess til að hann sé ringlaður og viti ekki í hvora ána hann eigi að fara.