Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kom hjólandi á fund ríkisstjórnarinnar sem fram fór í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Tilefnið er evrópsk samgönguvika sem nú stendur yfir.
Guðmundur Ingi er vanur hjólreiðamaður og ákvað hann að læsa hjóli sínu við ljósastaur við Tjarnargötuna áður en hann gekk inn á fundinn. Guðmundur Örn Guðjónsson, aðalvarðstjóri sem hefur umsjón með öryggismálum í kringum ríkisstjórnina, var staddur á Tjarnargötunni og tók hann eftir því að ráðherra virtist vera í töluverðum vandræðum og í ljós kom að hjólalásinn reyndist of lítill og náði ekki utan um ljósastaurinn og hjólið.
Í sameiningu ákváðu umhverfisráðherra og lögregluþjónninn að einfaldara og örugga væri að læsa hjólinu við handrið við tröppur ráðherrabústaðarins og varð það niðurstaðan og gengu báðir aðilar sáttir frá borði.
Af ríkisstjórnarfundinum mun Guðmundur Ingi halda hjólaferðinni áfram á Seltjarnarnes þar sem fram fer ráðstefna á vegum Hjólafærni og Landssamtaka hjólreiðamanna undir yfirskriftinni „Hjólum til framtíðar.“