Fyrsti þjónustuaðilinn með Alipay

Fleiri fyrirtæki eru í viðræðum til þess að bjóða upp …
Fleiri fyrirtæki eru í viðræðum til þess að bjóða upp á þjónustuna. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Keflavíkurflugvöllur varð í vikunni fyrsti þjónustuaðilinn á Íslandi til að gera viðskiptavinum mögulegt að borga fyrir vöru og þjónustu með Alipay gegnum ePassi. Samstarf Alipay og ePassi hefur náð miklum árangri þar sem bein markaðssetning ePassi í gegnum Alipay app gegnir lykilhlutverki til að ná athygli kínverskra ferðamanna, að segir í tilkynningu frá Isavia.

Fyrsta greiðslan var innt af hendi í verslun 66° Norður á Keflavíkurflugvelli í gær, en Bláa lónið, Penninn-Eymundsson og Optical Studio bjóða ferðalöngum einnig upp á að borga fyrir vörur og þjónustu með Alipay. Þá eru fleiri fyrirtæki eru í viðræðum til að bjóða upp á þessa lausn.

„Í fyrra fóru nærri 86.000 kínverskir borgarar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og það sem af er þessu ári eru ferðalangar þaðan orðnir 55.300 samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri á viðskiptasviði Keflavíkurflugvallar. „Fram hefur komið í fjölmiðlum að útgefnar tölur frá kínverskum stjórnvöldum bendi til þess að áætlað sé að um 300 þúsund kínverskir ferðamenn sæki Ísland heim árið 2020 og þessi nýja þjónusta auðveldar þessum hópi ferðamanna að versla vörur og þjónustu á Keflavíkurflugvelli.“

Alipay er hluti af Alibaba-samsteypunni, sem er stærsta netverslun heims, og ein vinsælasta farsímagreiðslulausn í heimi með yfir 870 milljónir virkra notenda. Alipay sér um yfir 70% af kínverskum greiðslum í gegnum farsíma. ePassi er stærsta farsímagreiðsluþjónustufyrirtækið á Norðurlöndum sem annast t.d. greiðsluþjónustuna og markaðssetningu fyrir Alipay.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert