Skoða aðstæður barnshafandi á landsbyggðinni

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra kynntu á ríkisstjórnarfundi í morgun áform um skoða í sameiningu breytingar til að styðja betur við barnshafandi konur á landsbyggðinni og fjölskyldur þeirra.

Samkvæmt frétt á vef Stjórnarráðsins verður skipaður starfshópur sem á að móta og leggja fram tillögur að úrbótum, hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti. 

Starfshópurinn mun fara yfir aðstæður þessara kvenna með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar þeirra þurfa að dveljast fjarri heimabyggð, með tilheyrandi tilkostnaði, í nokkurn tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu og eftir fæðingu.

Enn fremur segir að óskað verði eftir tilnefningum í vinnuna á næstu dögum en gert er ráð fyrir því að tveir formenn leiði hópinn. Annar verður frá félags- og barnamálaráðherra og hinn frá heilbrigðisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert