Rúta og fólksbíll rákust saman

mbl.is/Eggert

Umferðaróhapp varð við brúna yfir Tungufljót skammt norðan við Geysi núna síðdegis. Viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. 

Ekki munu hafa orðið slys á fólki, en líknarbelgir sprungu út við áreksturinn. Sjö manns voru um borð í ökutækjunum tveimur.

Lögregla segir veginn vera lokaðan, en hjáleið sé um Brúarlöð eftir Skeiðavegi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert