Sumardagurinn fyrsti sá besti

Með hækkandi sól fer trampólínum fjölgandi í görðum landsins.
Með hækkandi sól fer trampólínum fjölgandi í görðum landsins. Haraldur Jónasson/Hari

Allt bendir til þess að sumardagurinn fyrsti verði besti dagur vikunnar þegar kemur að veðri en þá er útlit fyrir fínasta hátíðarveður í flestum landshlutum, sólríkt og fremur hlýtt í veðri.

„Vetrarlegt veður á Norðurlandi í dag, svalt og dálítil él, en slydda norðaustant il fram eftir morgni. Mun vorlegra veður sunnanlands, sólríkt og fremur milt, en þar má búast við vaxandi skúramyndunum þegar líður á daginn.

Skil ganga vestur yfir landið á morgun með vaxandi vindi og úrkomu og hlýnar heldur í veðri fyrir norðan. Úrkoman verður yfirleitt í formi rigningar sunnan- og vestanlands, en slydda eða jafnvel snjókoma norðan og austanlands fyrripart dags en fer yfir í rigningu þegar líður á daginn.

Snýst í suðaustanátt og dregur úr úrkomu annað kvöld, fyrst austantil á landinu. Hitaskil fara síðan vestur yfir landið á miðvikudag með rigningu og hlýnar enn frekar í veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðlæg átt, 5-13 í dag og dálítil él um landið norðanvert og hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur sunnan til, skýjað með köflum eða bjartviðri og hiti 5 til 10 stig yfir hádaginn, en sums staðar skúrir síðdegis. Vaxandi norðaustanátt seint í nótt og í fyrramálið með rigningu eða slyddu, fyrst austantil. Norðaustan og austan 13-20 m/s um hádegi á morgun, hvassast syðst og hlýnar heldur í veðri. Snýst í suðaustan 10-18 annað kvöld og dregur úr úrkomu.

Á þriðjudag:

Norðaustlæg átt 8-15 m/s og slydda eða snjókoma N-til, en slydda eða rigning síðdegis og hlýnar heldur. Rigning í öðrum landshlutum og hiti 2 til 7 stig, en úrkomulítið vestanlands fram að hádegi. 

Á miðvikudag:
Suðaustlæg átt, 5-10 m/s og úrkomulítið, en rigning í flestum landshlutum þegar líður á daginn. Hlýnandi veður. 

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Austlæg átt, 8-15 m/s og skýjað með köflum eða bjartviði, en þokubakkar við austurströndina. Hvassast syðst á landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast vestanlands. 

Á föstudag:
Ákveðin austanátt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Fremur hlýtt í veðri. 

Á laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt. Rigning eða slydda með köflum um landið norðanvert, en úrkomulítið sunnanlands. Kólnandi veður.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert