Skíðamaður með þyrlu til Akureyrar

Skarðsdalur í Siglufirði. Almenna skíðasvæðinu hefur verið lokað.
Skarðsdalur í Siglufirði. Almenna skíðasvæðinu hefur verið lokað. mbl.is/Sigurður Ægisson

Skíðamaður var fluttur slasaður frá Siglufirði yfir til Akureyrar með þyrlu Landhelgisgæslunnar í dag. Viðkomandi var á skíðum á skíðasvæðinu. Sjúkrabíll tók við hinum slasaða á Akureyri og ók honum á sjúkrahús.

Svo vildi til að þyrla Landhelgisgæslunnar var stödd á Akureyri þegar tilkynning barst um óhappið á Siglufirði. Ekki liggur fyrir hvers konar óhapp var um að ræða.

Skíðasvæðinu í Skarðsdal í Siglufirði hefur verið lokað fyrir sumarið. Hinn slasaði kann því að hafa verið á gönguskíðum. Ljóst er að hann var ekki í almennu skíðabrekkunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert