Samningar nást um Herjólf

Pólska skipasmíðastöðin Crist S.A. hefur samþykkt tilboð Vegagerðarinnar um lokauppgjör …
Pólska skipasmíðastöðin Crist S.A. hefur samþykkt tilboð Vegagerðarinnar um lokauppgjör vegna smíði Herjólfs og styttist því í að ferjan verði afhent.

Skipasmíðastöðin Crist S.A. hefur samþykkt tilboð Vegagerðarinnar um lokauppgjör vegna smíði Herjólfs og styttist því í að ferjan verði afhent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Tilboðið hefur verið samþykkt en samningar hafa ekki verið undirritaðir. Þess má þó vænta  að það verði gert fljótlega. Tilboðið var sent skipasmíðastöðinni í morgun. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær Herjólfur verður afhentur en G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í samtali við mbl.is að verið sé að horfa til upphafs næstu viku í því samhengi. Siglingin til Íslands tekur svo einhverja daga og áður en áætlanasiglingar hefjast munu ákveðnar prófanir fara fram. 

Deil­ur hafa staðið um greiðslur vegna smíðinn­ar og hef­ur skipa­smíðastöðin viljað hærri greiðslur vegna auk­inna verk­efna sem þeir telja hafa komið upp í ferl­inu. Samningaviðræður hafa staðið yfir síðan í febrúar þegar ljóst var að stöðin krefðist viðbótargreiðslu upp á  8,9 milljónir evra. Sú krafa var að mati Vegagerðarinnar ekki í samræmi við efni samnings um smíði skipsins. Í núverandi sáttagerð hefur Vegagerðin fallist á að greiða stöðinni viðbót við smíðaverð upp á 1,5 milljónir evra auk þess að falla frá kröfu um tafabætur að andvirði 2 milljóna evra.

„Það er álit Vegagerðarinnar að með þessu sé fram komin lausn sem báðir aðilar geta við unað um leið og forðað verði  frekara tjóni vegna tafa á afhendingu skipsins,“ segir í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að Vegagerðin fagni því að þessi óvenjulega deila sé leyst og að það styttist í að nýr Herjólfur komi til landsins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka