Viljayfirlýsing um kolefnishreinsun

Frá blaðamannafundi í hádeginu þar sem yfirlýsingin var undirrituð.
Frá blaðamannafundi í hádeginu þar sem yfirlýsingin var undirrituð. mbl.is/​Hari

Í hádeginu var undirrituð í Ráðherrabústaðnum viljayfirlýsing um kolefnishreinsun- og bindingu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og forstjórar og fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Elkem, Fjarðaáls, Rio Tinto á Íslandi og Norðuráls undirrituðu viljayfirlýsinguna.

Jafnframt stendur PCC á Bakka að yfirlýsingunni en forsvarsmenn verksmiðjunnar munu undirrita yfirlýsinguna síðar.

mbl.is/​Hari

Samkvæmt henni verður kannað til hlítar hvort aðferð sem kölluð er „CarbFix“ geti orðið raunhæfur kostur, bæði tæknilega og fjárhagslega, til þess að draga úr losun koldíoxíðs (CO2) frá stóriðju á Íslandi. Þá munu fyrirtækin hvert um sig leita leiða til að verða kolefnishlutlaus árið 2040, að því er segir í tilkynningu.

Orkuveita Reykjavíkur hefur þróað „CarbFix“ aðferðina í samstarfi við Háskóla Íslands og erlenda aðila frá árinu 2007. Aðferðin felst í því að CO2 er fangað úr jarðhitagufu, gasið leyst upp í vatni undir þrýstingi og vatninu dælt niður á 500-800 m dýpi í basaltjarðlög, þar sem CO2 binst varanlega í berggrunninum í formi steinda. Orka Náttúrunnar, dótturfélag OR, hefur nú rekið lofthreinsistöð og niðurdælingu við Hellisheiðarvirkjun samfellt í 5 ár með góðum árangri.

mbl.is/​Hari

Þörf er á víðtæku samstarfi til að takast á við loftslagsvandann en samstarf atvinnulífs og stjórnvalda getur haft mikil áhrif, bæði hér á landi og á alþjóðavísu. Viljayfirlýsingin er í tilkynningunni sögð enn eitt skref í þá átt og er í samræmi við áherslur samkomulags um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir, sem var undirritað 28. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert