Ákærður fyrir upptökur í kvennaklefa

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða.
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða. Bæjarins besta

Karlmaður hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir ítrekuð kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa á árunum 2017 og 2018 ítrekað tekið myndskeið yfir skilrúm milli búningsklefa karla og kvenna í húsakynnum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar á Vestfjörðum.

Í ákæru málsins er maðurinn ákærður fyrir brot gegn fimm stúlkum undir lögaldri, einum dreng undir lögaldri og þremur konum yfir 18 ára aldri. Eru brotin talin varða við ákvæði almennra hegningarlaga um blygðunarsemisbrot, auk þess sem brotin gegn börnunum eru talin brjóta gegn þeirri grein barnaverndarlögum sem tekur á ósiðlegu athæfi gegn börnum. Þá er hann ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum myndskeiðin sem um ræðir.

Myndaði maðurinn fólkið þegar það var statt í kvennaklefa sundlaugarinnar með myndavél síma síns og sýndu myndskeiðin fólkið nakið. Stúlkurnar voru á aldrinum 9 til 14 ára þegar brotin áttu sér stað og drengurinn á fimmta ári.

Samtals fara þau sem maðurinn tók myndskeið af fram á 10,5 milljónir í miskabætur vegna brota hans. Málið var þingfest í Héraðsdómi Vestfjarða í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert