Ríkissaksóknari hætti í byrjun október rannsókn á meintum upplýsingaleka embættis héraðssaksóknara til fjölmiðla í tengslum við systkinin fjögur sem kennd eru við útgerðarfélagið Sjólaskip.
Frá þessu er greint á vef RÚV.
Kæran beindist að embætti héraðssaksóknara, en ekki tilgreindum starfsmanni þess, en saksóknari í málum systkinanna er bróðir blaðamanns sem skrifað hefur um skattamál systkinanna.
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari fer með málin gegn systkinunum, en bróðir hans er blaðamaðurinn Ingi Freyr Vilhjálmsson.
Systkinin fjögur kröfðust þess að málum þeirra, sem alls eru fimm talsins, verði vísað frá dómi og byggja þá kröfu á því að hægt sé að draga hlutleysi saksóknarans í efa.
Kæra systkinanna snýst um tvær fréttir, eina sem Ingi Freyr skrifaði í Fréttatímann í byrjun nóvember 2016 og fjallaði um að embætti skattrannsóknarstjóra hefði kært viðskipti systkinanna í skattaskjólinu Tortólu til héraðssaksóknara.
Hin fréttin sem kæran lýtur að birtist í Stundinni í apríl á þessu ári, en þar var greint frá því að rannsókn embættis héraðssaksóknara á málinu væri lokið. Á þeim tímapunkti var verið að taka ákvörðun um hvort ákært yrði í málinu, en það var svo gert í sumar.