Viðvarandi mengunarástand

Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og því …
Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag skv. mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Styrkur efnisins hefur þegar farið þrisvar yfir leyfilegt klukkustundargildi sem er 200 míkrógröm á rúmmetra. Klukkan 12:00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 207,9 míkrógrömm á rúmmetra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 

Mengunin er mest á morgnana og í eftirmiðdaginn

Fram kemur að köfnunarefnisdíoxíðmengun komi frá útblæstri bifreiða og sé mest á morgnana og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og því talsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi, segir eftirlitið. 

Farið átta sinnum yfir sólarhringsheilsuverndarmörk

Þá segir að sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð séu 75 míkrógrömm á rúmmetra, sem ekki megi fara yfir oftar en 7 sinnum á almanaksári og klukkustundarheilsuverndarmörkin séu 200 míkrógrömm á rúmmetra, sem ekki má fara yfir oftar en 18 sinnum á almanaksári. 

Það sem af er ári hefur styrkur köfnunarefnisdíoxíðs farið átta sinnum yfir sólarhringsheilsuverndarmörk og 5 sinnum yfir klukkustundarheilsuverndarmörk.

Hvetja almenning til að draga úr notkun einkabílsins

„Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is,“ segir eftirlitið ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert