Jón fylgjandi ríkisafskiptum

Jón var líklega ekki mikill frjálslyndismaður í nútímaskilningi.
Jón var líklega ekki mikill frjálslyndismaður í nútímaskilningi.

Sagnfræðilegar heimildir benda til þess að sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson hafi verið undir áhrifum þýskra ríkisvísinda fremur en frjálslyndisstefnu og þannig verið fylgjandi auknum ríkisafskiptum.

Þetta segir Sveinn Máni Jóhannesson, nýdoktor í sagnfræði, en hann færir rök fyrir þessu í grein sinni Farsældarríki Jóns Sigurðssonar, sem birtist í nýjasta hefti tímaritsins Sögu. Ríkisvísindi eru að sögn Sveins akademískt fag sem Jón tileinkaði sér í Kaupmannahafnarháskóla og snerist um það hvernig stýra ætti ríkjum með skilvirkum hætti með sérstakri áherslu á að hið opinbera bæri ábyrgð á að efla hamingju, velferð og farsæld þegnanna.

Telur Sveinn að skortur á rannsóknum á stjórnmálahugmyndum frá samtíma Jóns og erlendu samhengi þeirra vera ástæðuna fyrir því að lítið er vitað um hugmyndafræði hans. Hann segir jafnframt að mikil tilhneiging sé til þess í íslensku fræðasamfélagi að flokka flestar hugmyndir undir frjálslyndisstefnu og þjóðernishyggju. Telur hann að hugmyndafræði Jóns Sigurðssonar hafi verið flóknari en svo, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta  í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert