Koma í veg fyrir innlagnir

Sjúkrahótel. Úrræði sem hefur sannað sig, að mati hótelstjórans, sem …
Sjúkrahótel. Úrræði sem hefur sannað sig, að mati hótelstjórans, sem telur að það létti álag á Landspítala. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég held að með þessu úrræði höfum við komið í veg fyrir töluvert af innlögnum á spítalann,“ segir Sólrún Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og hótelstjóri á sjúkrahóteli Landspítala.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sagði í viðtali við Morgunblaðið í liðinni viku að tilkoma sjúkrahótelsins, sem opnað var í maí síðastliðnum, hefði stytt legutíma á sjúkrahúsinu.

Sólrún segir að nýtingin á sjúkrahótelinu hafi verið mjög góð. Hún sé nú 85-87% en hafi dottið aðeins niður um jól og áramót. Alls hafa um 2.700 einstaklingar gist á sjúkrahótelinu frá því það var opnað.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Sólrún að meira og minna hafi verið fullbókað á hótelinu frá opnun og hópurinn sem nýti sér þjónustuna sé afar fjölbreyttur. Hún kveðst telja að það muni um að margir flytji sig yfir á sjúkrahótelið eftir að hafa farið í aðgerðir en meira þurfi til. Meðaldvalartími á sjúkrahótelinu er 4,6 nætur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert