Barn með vinina á rúntinum í nótt

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan stöðvaði för bifreiðar í miðborginni á fjórða tímanum í nótt og kom í ljós að ökumaðurinn var aðeins 16 ára og hefur því aldrei öðlast ökuréttindi. 

Tveir farþegar voru í bifreiðinni og voru þeir einnig 16 ára. Málið var afgreitt með aðkomu foreldra og tilkynningu til Barnaverndar.

Ekið var á hlaupandi vegfarenda við Víkurveg í Grafarvogi upp úr klukkan 21 í gærkvöldi. Hlauparinn kom sér sjálfur á læknavaktina en hann var með verki í olnboga en óbrotinn. Að sögn ökumannsins sá hann ekki  manninn fyrr en við óhappið.

Lögreglan stöðvaði för ökumanns sem var undir áhrifum fíkniefna í Árbænum í nótt að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert