Nýr vefur umboðsmanns barna

Af forsíðu nýs vefs umboðsmanns barna.
Af forsíðu nýs vefs umboðsmanns barna. Skjáskot

Nýr vefur umboðsmanns barna, www.barn.is, er nú kominn í loftið. Nýjum vef er ætlað að bæta aðgengi barna að embættinu með einfaldari leiðum til að senda fyrirspurnir og nálgast svör við algengum spurningum frá börnum. Þá mun börnum gefast tækifæri til að senda inn skilaboð í gegnum netspjall sem tekið verður til notkunar síðar og kynnt sérstaklega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðsmanni barna. Þar segir einnig að sérstakri upplýsingasíðu fyrir kórónuveiruna hafi verið komið upp á vefnum.

Mikilvægt sé að börn hafi gott aðgengi að vönduðum upplýsingum. Á síðunni verður hægt að nálgast fjölbreytt efni sem hefur verið birt um faraldurinn en nauðsynlegt er að hægt sé að nálgast það allt á einum stað. Á síðunni verður meðal annars hægt að finna upplýsingar til barna og fullorðinna um hvað hægt er að gera í samkomubanni, fræðsluefni um kórónuveiruna, breytt skólahald og leiðbeiningar til fullorðinna um hvernig eigi að tala við börn um kórónuveiruna.

„Ég er mjög ánægð með hvernig tekist hefur til og það er von mín að nýr vefur muni auðvelda til muna aðgengi barna að embættinu og auðvelda þeim að senda okkur fyrirspurnir. Þá er mjög mikilvægt að börn geti nálgast allar helstu upplýsingar um faraldurinn á einum stað,“ er haft eftir Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert