Á hraðferð í kringum landið

Grjótkrabbi greindist fyrst hérlendis í Hvalfirði árið 2006.
Grjótkrabbi greindist fyrst hérlendis í Hvalfirði árið 2006. mbl.is/Reynir Sveinsson

Grjótkrabbinn heldur áfram hringferð sinni við landið. Hann greindist fyrst í Hvalfirði 2006 og hefur útbreiðsla hans um grunnsævi Íslands verið með eindæmum hröð og spannar hún nú stóran hluta af strandlengjunni, frá Faxaflóa réttsælis umhverfis landið allt austur í Reyðarfjörð.

Sömuleiðis hefur þéttleikinn aukist og er víða orðinn mjög mikill, eins og á tilteknum svæðum í Faxaflóa. Fylgst hefur verið með landnáminu frá upphafi og innlendar krabbategundir eins og trjónukrabbi og bogkrabbi hafa gefið eftir. Árleg vöktun hefur verið í Faxaflóa og í tilraunaveiðum í Hvalfirði á síðasta ári var grjótkrabbi um 95% krabbaafla.

Grjótkrabbi þykir herramannsmatur og á þessu fiskveiðiári hafa verið veidd rúmlega sjö tonn af honum. Það er talsvert meira en veitt hefur verið af krabbanum við landið síðustu ár. Fjóla GK hefur komið með bróðurpartinn að landi, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert