Samningurinn að óbreyttu fallinn

Lífskjarasamningarnir kynntir í Ráðherrabústaðnum
Lífskjarasamningarnir kynntir í Ráðherrabústaðnum mbl.is/​Hari

„Miðað við stöðuna eru lífskjarasamningarnir fallnir. Við munum ekki verja samninginn miðað við óbreytta stöðu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Tilefnið er að ríkisstjórnin hafi hvorki staðið við fyrirheit um afnám 40 ára verðtryggðra jafngreiðslulána né loforð um hlutdeildarlán.

Ragnar lýsti þessum sjónarmiðum á fundi með þjóðhagsráði í gær. „Staða þessara tveggja mála gerir það að verkum að samningarnir eru fallnir. Ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðuneytisins. Ég er búinn að hafa samband við félaga okkar í Eflingu til að funda um stöðuna og mögulegar aðgerðir í haust.“

Skilur ekki ríkisstjórnina

„Það þarf að ræða framhaldið og næstu skref. Þegar traustið er ekki til staðar er ekki von á góðu. Því miður. Ég skil ekki ríkisstjórnina að fara með verkalýðshreyfinguna í fanginu inn í næstu þingkosningar. Það er dapurlegt að horfa upp á að lífskjarasamningarnir skuli falla á vanefndum ríkisstjórnarinnar sem er að leita eftir trausti til að vinna sig í gegnum kórónukreppuna. Það er mjög dapurleg niðurstaða,“ segir Ragnar Þór og rifjar upp að hinn 1. september virkjast endurskoðunarákvæði lífskjarasamningsins.

Meðal atriða sem tekin verði til endurskoðunar séu þróun kaupmáttar og efndir stjórnvalda vegna samningsins. Nóg sé að annað þessara atriða hafi ekki gengið eftir til að fella samninginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert