Einn fluttur á sjúkrahús eftir eldsvoða í Keflavík

Eldur kviknaði í eldhúsi á Kebab-veitingastað í Keflavík í morgun. …
Eldur kviknaði í eldhúsi á Kebab-veitingastað í Keflavík í morgun. Mynd úr safni.

Eldur kviknaði í eldhúsi á Kebab-veitingastað í Keflavík í morgun. Einn var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. 

Samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Suðurnesja var mikill svartur reykur þegar slökkvilið kom á staðinn. Mikið tjón varð á veitingastaðnum. 

Einn starfmaður var á staðnum þegar eldurinn kviknaði og var hann fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. 

Tvær íbúðarhæðir eru fyrir ofan veitingastaðinn og voru þær rýmdar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert