Tvær einbreiðar brýr aflagðar í haust

Steinavötn. Brúin er um 100 m löng og kemur í …
Steinavötn. Brúin er um 100 m löng og kemur í stað bráðabirgðabrúar eftir að gamla brúin skemmdist í flóðum. mbl.is/Guðmundur Sv. Hermannsson

Tvær af þeim fjórum brúm sem Ístak er að byggja fyrir Vegagerðina við hringveginn á Suðurlandi eru á áætlun. Þær leysa af hólmi einbreiðar brýr. Tafir hafa hins vegar orðið á hinum tveimur, af mismunandi ástæðum.

Vinna við brýrnar yfir Steinavötn í Suðursveit og Kvíá í Öræfum gengur samkvæmt áætlun, að sögn Arons Bjarnasonar, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni. Verða þær teknar í notkun í haust.

Tafir hafa orðið við gerð brúar yfir Fellsá í Suðursveit vegna samninga við landeigendur og verður hún ekki tekin í notkun fyrr en á næsta ári. Vonast Aron til að það takist að ljúka nýrri brú á Brunná í Fljótshverfi á þessu ári en vatnavextir hafa tafið brúargerð þar.

Á næsta ári var fyrirhugað að byggja nýja brú á Jökulsá á Sólheimasandi og Hverfisfljót í Skaftárhreppi. Hvorug þeirra hefur verið boðin út. Jökulsá er mikil framkvæmd og dýr og hefur staðið á fjármögnun.

Gangi þessar áætlanir eftir fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrjár á þessu ári og verða þá eftir 33, og hugsanlega um þrjár til viðbótar á næsta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka