Kyrrstæður húsbíll fauk á hliðina í miðbæ Akureyrar um klukkan 4 í dag. Slökkvilið var kallað á staðinn til að rétta af bílinn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.
Að sögn lögreglunnar var ekki mikill vindur í bænum í dag, og málið þess vegna hið furðulegasta. Bílnum var lagt við gangstétt og fauk um koll í sterkri vindhviðu. Nokkrar skemmir urðu á húsbílnum.