Hafnar málskotsbeiðni stuðningsfulltrúans

Hæstiréttur veitti hafnaði málskotsbeiðni Guðmundar Ellerts.
Hæstiréttur veitti hafnaði málskotsbeiðni Guðmundar Ellerts. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Guðmundar Ellerts Björnssonar, fyrrverandi stuðningsfulltrúa hjá Barnavernd Reykjavíkur, um að mál hans verði tekið fyrir. Landsréttur dæmdi Guðmund Ellert í sumar í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þremur börnum, en hann hafði verið sýknaður í málinu fyrir héraðsdómi.

Í ákvörðun Hæstaréttar vegna málskotsbeiðninnar segir að Guðmundur Ellert hafi talið brýnt að fá afstöðu til þess hvaða áhrif það hafi haft á sönnunarstöðu málsins að vitni hefðu lýst miklum undirbúningi málsins með aðkomu tveggja lögmanna sem hefðu fundað oft með tveimur brotaþolum og fjölskyldu þeirra.

Vísar Guðmundur Ellert til þess að hann hafi „réttilega verið sýknaður af héraðsdómi af öllum

ákæruatriðum og að Landsréttur hafi ekki endurmetið sönnunargildi munnlegs framburðar

leyfisbeiðanda og vitna nema að mjög litlu leyti,“ að því er segir í úrskurði Hæstaréttar.

Áfrýjun breyti ekki dómi

Fór Guðmundur Ellert fram á áfrýjunarleyfi, en til vara að dómur Landsréttar yrði tekinn til endurskoðunar hvað ákvörðun refsingar varðar. Meint brot hafi verið framin fyrir 22 árum og tæp tvö ár liðið frá því að dómur gekk í héraði þar til Landsréttur kvað upp sinn dóm. Telur Guðmundur Ellert að Landsréttur hefði átt að gefa þeim drætti meira vægi við ákvörðun refsingar.

Í úrskurði Hæstaréttar segir að að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggi jafnframt fyrst og fremst á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar leyfisbeiðanda, brotaþola og nafngreindra vitna, en það mat verði ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti. „Með vísan til þess er ljóst að áfrýjun til réttarins mun ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert