Auglýsing sunnudagaskólans tekin niður

Auglýsingin sýnir Jesú með skegg, brjóst og andlitsfarða.
Auglýsingin sýnir Jesú með skegg, brjóst og andlitsfarða. Ljósmynd/Þjóðkirkjan

Auglýsing þjóðkirkjunnar sem auglýsir sunnudagaskóla kirkjunnar hefur verið fjarlægð af facebooksíðu kirkjunnar og vefsíðu hennar. Auglýsingin hefur vakið mikil viðbrögð undanfarið en í henni birtist Jesús með brjóst og andlitsfarða.

Kirkjuþing 2020 stendur nú yfir og hefur samskiptastjóri þjóðkirkjunnar áður sagt að líklega verði auglýsing rædd á þinginu þótt hún sé ekki hluti formlegrar þingdagskrár.

Viðhorfið ef til vill breyst

Í samtali við mbl.is sagði Pétur Georg Markan, samskiptastjóri þjóðkirkjunnar, nýverið að kirkjan teldi jákvætt og eðlilegt að Kristur birtist fólki í öllum mögulegum myndum. Þannig fagnaði kirkjan fjölbreytileika mannfólks.

Hins vegar virðist eitthvað hafa breyst í þessu viðhorfi kirkjunnar þar sem auglýsingin hefur verið fjarlægð af facebooksíðu kirkjunnar og vefsíðu.

Skilja öll sjónarmið vel

Pétur Markan sagði hins vegar að kirkjan skildi vel þau sjónarmið fólks að kirkjunni beri að gæta sín þegar kemur að kristsgervingum. „Við vit­um þó að ekki eru all­ir sam­mála um að Krist­ur eigi að birt­ast svona og við ber­um auðvitað virðingu fyr­ir því.“

Pétur sagði einnig við mbl.is í vikunni að fyrirhugað væri að birta fleiri kristsgervinga í auglýsingarherferð kirkjunnar fyrir sunnudagaskólann. Myndirnar sem nota á í herferðinni teiknaði Lára Garðarsdóttir og segir Pétur að hún hafi teiknað margar fallegar myndir sem nota eigi í herferð kirkjunnar.

„Við mun­um á næst­unni kynna fleiri krists­gerv­inga þar sem til að mynda má sjá Jesú taka til hend­inni í um­hverf­is­mál­um,“ sagði Pétur við mbl.is.

Ekki náðist í Pétur Markan, samskiptastjóra þjóðkirkjunnar, við gerð fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert