Þriggja stiga skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu

Hverir suður af Kleifarvatni.
Hverir suður af Kleifarvatni. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti af stærðinni 3 varð við Kleifarvatn rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt mælingum Veðurstofunnar átti skjálftinn upptök sín um tveimur kílómetrum vestan við vatnið, á sex kílómetra dýpi.

Fleiri skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Enginn þó stærri en 1,3 samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert