Aðkomu Landhelgisgæslunnar lokið

Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði í gærmorgun.
Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði í gærmorgun. Ljósmynd/Albert Geirsson

Aðkomu Landhelgisgæslunnar að togaranum Drangi sem sökk óvænt á Stöðvarfirði í gærmorgun lauk síðdegis í gær. Kafarar Landhelgisgæslunnar lokuðu lúgum á togaranum og þéttu öll öndunarop, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. 

Varðskipið Þór kom að aðgerðunum en skipið er nú farið frá Stöðvarfirði. Næstu skref eru í höndum tryggingafélags togarans og þeirra aðila sem félagið fær til að ná skipinu af botni hafnarinnar. 

Vísir greindi fyrst frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert