Farandsala á bjór til rannsóknar hjá lögreglu

Dagbjartur Árelíusson með mjöðinn víðförla.
Dagbjartur Árelíusson með mjöðinn víðförla.

Lögreglan á Vesturlandi rannsakar nú farandsölu á bjór sem eigandi brugghússins Steðja á samnnefndum bæ í Flókadal í Borgarfirði stendur fyrir.

Fyrirtækið opnaði nýlega netverslun þar sem panta má alls átta gerðir af bjór, þar með talið tvær tegundir af jólabjór, sem viðskiptavinir fá sendan heim.

Dagbjartur Árelíusson, sem starfrækir brugghúsið, segir þetta vera heimilt skv. EES-reglum, samanber að Íslendingar geti keypt áfengi í gegnum erlendar netverslanir sem Pósturinn kemur svo til skila. „Við teljum reglurnar okkar megin,“ segir Dagbjartur sem er nú í söluferð um Austurland.

„Ég get staðfest að þetta mál er til rannsóknar hjá embættinu,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert