Ljósin tendruð á jólatrénu í Kópavogi

Ljósin voru tendruð um helgina.
Ljósin voru tendruð um helgina. Ljósmynd/Kópavogsbær

Ljósin voru tendruð á jólatré Kópavogsbæjar um helgina í mildu og fallegu vetrarveðri. Með tendrun jólatrésins hefur nú verið kveikt á öllum jólaseríum Kópavogsbæjar, en starfsmenn bæjarins hófust handa við að kveikja á jólaljósunum í októberlok. 

Nokkrir nemendur úr Kársnesskóla sungu þrjú jólalög undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og Margrét Friðriksdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, tendraði á trénu, sem stendur við Menningarhúsin í Kópavogi. Í lok söngsins óskaði kórinn öllum nær og fjær gleðilegra jóla.

Undanfarin ár hefur verið haldin vegleg aðventuhátíð í Kópavogi, daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu, en í ljósi aðstæðna varð ekki af slíkri hátíð í ár. Menningarhúsin í Kópavogi munu þess í stað bjóða upp á viðburði á netinu í desember, þar á meðal Aðventudagatal þar sem leynast munu jólasögur, hátíðartónar og aðventugóðgæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert