Vonskuveðrið er aðeins stormurinn á undan frostinu

Vetrarlegt á Akureyri.
Vetrarlegt á Akureyri. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Vetrarlegt er um að litast á Akureyri eins og sjá má. Mikið vindaveður gekk yfir landið í gær og fóru hviður upp í allt að 60 m/s í Hamarsfirði á Austurlandi í fyrrinótt.

Það tekur að lægja í fyrramálið en þá stígur kaldur loftmassi niður til jarðar með tilheyrandi kulda: 10 til 12 gráðu frosti er spáð á laugardag suðvestan til.

Hitaveitur hafa vart undan og biðla til almennings að fara sparlega með heita vatnið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert