Bílvelta á Reykjanesbraut

Einhverjar tafir kunna að vera á umferð.
Einhverjar tafir kunna að vera á umferð. Ljósmynd/Aðsend

Einn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir bílveltu á Reykjanesbraut til móts við Vogaafleggjara upp úr klukkan átta í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja var maður í jepplingi fluttur á HSS til aðhlynningar eftir veltu.

Einhverjar tafir gætu verið á umferð á Reykjanesbrautinni til vesturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert