Hagstofan varar við svikapósti

AFP

Hagstofa Íslands varar við tölvupósti í umferð sem við fyrstu sýn lítur út fyrir að koma frá Hagstofunni, en nokkrir aðilar hafa haft samband við stofuna vegna þessa.

Í tilkynningu frá Hagstofunni segir að um svikapóst sé að ræða, sem ætlað er að komast yfir upplýsingar um lykilorð og persónuupplýsingar. Verið sé að tilkynna málið til lögreglu og netöryggissveitar CERTÍS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert