Fengu loksins ávísunina

Nemendur í Grundaskóla á Akranesi fengu 50.000 króna ávísun frá …
Nemendur í Grundaskóla á Akranesi fengu 50.000 króna ávísun frá UMFÍ og Kristal. Ljósmynd/Aðsend

Nemendur við Grundaskóla á Akranesi tóku í dag við ávísun frá UMFÍ og Kristal upp á 50.000 krónur, sem þeir unnu með þátttöku í Hreyfiviku félagsins í fyrra.

Skilyrði fylgdi ávísuninni: Það þurfti að gefa hana áfram til góðs málstaðar eða félags að eigin vali.

Nemendurnir völdu að ÍA, Íþróttabandalag Akraness, fengi verðlaunaféð og ákváðu um leið að eyrnamerkja það því verkefni að íþróttafélagið verði því í að efla íþróttir án aðgreiningar. Markmiðið er að allir geti tekið þátt.

Tveir aðrir grunnskólar fengu sömu verðlaun á síðasta ári en ekki hefur verið unnt að afhenda þau fyrr en nú vegna kórónuveirufaraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert