Flugvirkinn sjálfs sín herra á strandveiðunum

Fyrir vestan. Árni Helgason stefnir á strandveiðar á Stakkafellinu í …
Fyrir vestan. Árni Helgason stefnir á strandveiðar á Stakkafellinu í sumar. Ljósmynd/Grímur B. Grétarsson

Ekki er ólíklegt að um 700 manns hefji strandveiðar fyrri hluta maímánaðar, en þær mega hefjast á mánudag. Meðal þeirra er Árni Helgason, sjómaður, flugvirki og rafeindavirki í Örlygshöfn, sem rær frá Patreksfirði á báti sínum.

Óhætt er að segja að heimsfaraldurinn hafi breytt högum hans hressilega. „Ég hafði starfað í um fimm ár sem flugvirki hjá Air Atlanta á Boeing 747-400-þotum þegar kórónuveikin skall á,“ segir Árni.

„Í starfinu hjá Atlanta hafði ég flogið víða um heim og meðal annars unnið mikið í Afríku og Evrópu. Þar sem ég er með sykursýki leist mér ekki á að halda þessu ævintýri í fluginu áfram eftir að faraldurinn skall á.

Ég flutti því heim í Örlygshöfn og setti kraft í að útbúa bát sem ég keypti fyrir tveimur árum. Reyndar var þetta bara skel með húsi, sem ég setti í vél og rafkerfi. Báturinn hafði legið í reiðileysi í Reykjavík og ég gerði hann upp. Í stað þess að dunda við það í fríum meðfram flugvirkjastörfum í útlandinu gerði ég bátinn kláran fyrir strandveiðarnar í fyrra og þær gengu bara vel. Aflinn var yfir 22 tonn af þorski, ég kvarta ekki,“ segir Árni meðal annars í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert