Lamdi vegfaranda með hælaskó í höfuðið

Kona var handtekin við Hverfisgötu um klukkan 19 í gærkvöldi eftir að hafa lamið vegfaranda með hælaskó í höfuðið.

Fólkið þekktist ekki og ekki er vitað hvað konunni gekk til. Hún gistir nú fangaklefa þar til hægt verður að yfirheyra hana, að sögn dagbókar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hrinti konu í veg fyrir bifreið

Um klukkan 22 var dyravörður handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir að hrinda konu í veg fyrir bifreið sem var ekið fram hjá skemmtistaðnum. Konan meiddist á hendi og var flutt á slysadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka