Þung staða og löng bið á bráðamóttöku

mbl.is/Kristinn Magnússon

Landspítali vekur athygli á miklu álagi á spítalanum sem birtist almenningi m.a. sérstaklega á bráðamóttökunni í Fossvogi. Þar má því búast við langri bið eftir þjónustu sé um vægari slys eða veikindi að ræða.

Álag á spítalann er að öllu jöfnu mikið og í venjulegu árferði er nýting bráðalegurýma um 100% en fer nú yfir það, að því er segir á vef spítalans. 

„Á bráðamóttökunni er sjúklingum forgangsraðað eftir bráðleika og ef kostur er vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt utan þjónustutíma heilsugæslu. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Í heimsfaraldri COVID-19 er sérstaklega mikilvægt að almenningur taki tillit til framangreindra aðstæðna á bráðamóttöku, ef mögulegt er,“ segir í tilkynningunni. 

Í þessu ljósi er vakin athygli á eftirfarandi valkostum:

Kvöld- og helgarvakt Læknavaktar

Læknavaktin í Austurveri við Háaleitisbraut er með opna móttöku alla virka daga kl. 17:00-23:30 og um helgar frá kl. 9-23:30.

Símavakt allan sólarhringinn

Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn í símum 1770 og 1700 og sinna þar faglegri símaráðgjöf og vegvísun í heilbrigðiskerfinu fyrir allt landið. Sérfræðingar hjá 1770 meta þörf fyrir þjónustu og koma verkefnum í farveg.

19 heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu

Lista yfir fimmtán heilsugæslustöðvar er að finna hérna:

Einkareknar heilsugæslustöðvar eru að auki starfræktar í fjórum hverfum höfuðborgarsvæðisins:

Heilsugæslan Höfða

Heilsugæslan Lágmúla

Heilsugæslan Salahverfi

Heilsugæslan Urðarhvarfi

Þjónustuvefsjá á Heilsuveru

Á Heilsuveru er þjónustuvefsjá þar sem einfalt er að finna næstu heilsugæslustöð og þá þjónustu sem í boði er um land allt. Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar er einnig að finna öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar og nálgast gögn úr eigin sjúkraskrá. Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Embættis landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert